Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Live@edu
Efni síðast breytt: 2012-10-31
Stjórnendur póstskipana í skýi geta notað Windows PowerShell með Windows Remote Management (WinRM) í Windows Management Framework til að stýra stillingum fyrir viðtakendur og lén og við skýrslugerð eða úrræðaleit. Hér er stutt lýsing á smáskipunum (cmdlets) sem til staðar er fyrir þessa stjórnendur Outlook Live. Þú getur fengið frekari hjálp um notkun einstakra smáskipana í skipanalínu síðar í þessari grein.
Ath. Ekki eru allar smáskipanir eða eiginleikar í boði hjá öllum póstskipunum.
Upplýsingar um hvernig á að setja upp og grunnstilla Windows PowerShell og tengjast þjónustunni má sjá í Nota Windows PowerShell.
Sem stendur geta stjórnendur Exchange Online notað eftirfarandi smáskipanir. Smáskipanir eru fyrst flokkaðar eftir stjórnsvæði og síðan út frá gerð hlutar.
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, grunnstilla og eyða viðtakandahlutum.
Ef þú ert með Microsoft Office 365 tölvupóstskipan þarftu að úthluta leyfum til nýrra pósthólfa því annars verða þau óvirk þegar reynslutíma lýkur. Frekari upplýsingar er að finna í Úthluta Microsoft Online Services leyfi fyrir ný pósthólf.
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, eyða og grunnstilla pósthólf.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-Mailbox | Skoða upplýsingar um skýjapósthólf. |
| New-Mailbox | Búa til nýjan notanda í póstskipan þinni sem er með pósthólf í tölvupóstþjónustu í skýjum. |
| Remove-Mailbox | Eyða pósthólfi. |
| Get-RemovedMailbox | Skoða eydd pósthólf sem hægt er að endurheimta. |
| Set-Mailbox | Breyta stillingum pósthólfs sem er til staðar. |
| Undo-SoftDeletedMailbox | Þessi smáskipun er aðeins í boði fyrir Microsoft Live@edu og Microsoft Office 365 hjá menntastofnunum. Notaðu smáskipunina Undo-SoftDeletedMailbox til að endurheimta pósthólf sem hefur verið eytt. Hægt er að endurheimta pósthólf innan 30 daga frá eyðingu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða , eyða og grunnstilla dreifingarhópa, stundum kallaðir „almenningshópar“, og varða öryggishópa. Dreifingarhópur, sem einnig er kallaður almenningshópur, er hópur tveggja eða fleiri einstaklinga sem birtist í samnýttu tengiliðaskránni. Frekari upplýsingar er að finna í Distribution Groups.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-DistributionGroup | Skoða upplýsingar um tiltekna dreifingarhópa eða sækja lista yfir dreifingarhópa sem eru í samnýttri nafnaskrá. Dreifingarhópar eru stundum kallaðir „almenningshópar“. |
| New-DistributionGroup | Búa til dreifingarhóp. |
| Remove-DistributionGroup | Eyða dreifingarhóp. |
| Set-DistributionGroup | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi dreifingarhóps. |
| Add-DistributionGroupMember | Bæta viðtakanda við dreifingarhóp sem er til staðar. |
| Get-DistributionGroupMember | Skoða aðila að dreifingarhóp sem er til staðar. |
| Remove-DistributionGroupMember | Eyða viðtakanda úr aðild að dreifingarhópi. |
| Update-DistributionGroupMember | Skrifa yfir núverandi aðild að dreifingarhópi. |
| Get-Group | Skoða alla dreifingarhópa, öryggishópa og hlutaverkahópa í póstskipaninni. |
| Set-Group | Breyta eiginleikum hóps sem þú getur ekki með öðru móti breytt með smáskipuninni Set-DistributionGroup. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða , eyða og grunnstilla kvika dreifingarhópa í póstskipaninni. Ólíkt föstum lista yfir meðlimi venjulegs dreifingarhóps er listi yfir meðlimi kviks dreifingarhóps reiknaðir í hvert sinn og skeyti er sent til hópsins. Útreikningurinn byggist á síum og skilyrðum sem þú skilgreinir þegar hópurinn er búinn til. Frekari upplýsingar er að finna í Kvikir dreifingarhópar.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-DynamicDistributionGroup | Skoða stillingar á fyrirliggjandi kvikum dreifingarhóp. |
| New-DynamicDistributionGroup | Búa til kvikan dreifingarhóp. |
| Remove-DynamicDistributionGroup | Eyða kvikum dreifingarhóp. |
| Set-DynamicDistributionGroup | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi kviks dreifingarhóps. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, eyða og grunnstilla ytri tengliði. Ytri tengiliðir eru aðilar utan fyrirtækisins sem hægt er að birta í tengiliðaskránni. Frekari upplýsingar er að finna í Ytri tengiliðir í tengiliðaskránni.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MailContact | Skoða upplýsingar um tiltekinn ytri tengilið eða tengiliði. |
| New-MailContact | Búa til samnýtta tengiliðaskrá fyrir ytri tengiliði. |
| Remove-MailContact | Eyða tengilið úr samnýttri tengiliðaskrá. |
| Set-MailContact | Breyta stillingum fyrir fyrirliggjandi ytri tengilið. |
| Get-Contact | Skoða upplýsingar um tiltekna tengiliði eða sækja lista yfir tengiliði sem eru í samnýttri nafnaskrá. |
| Set-Contact | Breyta eiginleikum tengiliðs sem er til staðar. Ath.: Ef þú vilt geta sent tölvupóst til tengiliðar skaltu nota smáskipanirnar *-MailContact . |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, eyða og grunnstilla póstnotendur. Póstnotandi er með reikning í þinni póstskipan en er ekki með pósthólf. Í staðinn fær póstnotandi tölvupóst sendan á ytra netfang. Frekari upplýsingar er að finna í Búa til póstnotendur.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MailUser | Skoða upplýsingar um póstnotendur í póstskipan þinni. |
| New-MailUser | Búa til nýjan póstnotanda í póstskipan þinni. |
| Remove-MailUser | Eyða fyrirliggjandi póstnotanda. |
| Set-MailUser | Breyta stillingum póstnotanda sem er til staðar. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-LinkedUser | Skoða upplýsingar um tengdan notandareikning. Tengdir notendareikningar eru notaðir til sannvottunar á blandaðri innleiðingu og með Exchange Recipient Management Web Services. Notandi í þinni póstskipan getur verið tengdur við ytri notanda eða vottorð. |
| Set-LinkedUser | Breyta eiginleikum tengds notandareiknings. |
| Get-SecurityPrincipal | Teldu upp öryggisstjórana í þinni póstskipan. Öryggisstjórar eru aðilar, eins og notendur eða öryggishópar, sem hægt er að úthluta leyfi og stjórnandaréttindi. |
| Get-Recipient | Skoða upplýsingar um alla hluti sem leyfa póst í póstkipan þinni. Niðurstöður sem skilað er fela í sér pósthólf, póstnotendur, tengiliði, dreifingarhópa og kvika dreifingarhópa. |
| Get-User | Skoða upplýsingar um pósthólf og póstnotendur í póstskipan þinni. |
| Set-User | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi pósthólfs eða póstnotanda. |
| New-MailMessage | Búðu til tölvupóstskeyti og settu skeytið í möppuna Drög í pósthólfi notanda. |
| Test-MAPIConnectivity | Sannprófa að tiltekið pósthólf geti tengst með MAPI-samskiptareglu, sem er notuð af Microsoft Office Outlook. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að úthluta miklum fjölda nýrra pósthólfa með því að nota CSV-skrá þar sem gildi eru aðskilin með kommum. Frekari upplýsingar er að finna í Nýir Exchange Online notendur fluttir inn með CSV-skrá.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-ProvisioningRequest | Skoða stöðuupplýsingar um núverandi úthlutunarbeiðni. Úthlutunarbeiðni býr til nýtt pósthólf í skýi fyrir þá notendur sem tilgreindir eru í CSV-skránni. |
| New-ProvisioningRequest | Býr til nýja safnúthlutunarbeiðni fyrir hóp notenda sem auðkenndur er í CSV-skrá. CSV-skráin er athuguð og, sé hún staðfest er úthlutunarbeiðni búin til í bið. Úthlutunarferlið hefst með Start-ProvisioningRequest smáskipuninni. |
| Remove-ProvisioningRequest | Stöðvar vinnslu safnúthlutunarbeiðni sem er í bið eða í gangi. |
| Start-ProvisioningRequest | Ræsir úthlutunarbeiðni í bið sem búin var til með New-ProvisioningRequest smáskipuninni. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að flytja póst frá innanhússpóstkerfi yfir í skýjaskipanina. Frekari upplýsingar er að finna í Yfirlit yfir flutning tölvupósts.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MigrationBatch | Skoða upplýsingar um núgildandi yfirfæsluhóp fyrir tölvupóst. |
| New-MigrationBatch | Búa til nýjan yfirfæsluhóp til að yfirfæra pósthólfsgögn frá öllum IMAP-þjónum innanhúss eða Microsoft Exchange kerfi í pósthólf í skýi. Í IMAP-yfirfærslu þarf að útbúa pósthólf í skýi áður en gögnin eru yfirfærð. |
| Remove-MigrationBatch | Eyðir flutningshóp sem er ekki í gangi eða er lokið. |
| Set-MigrationBatch | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi flutningshóps. |
| Start-MigrationBatch | Hefja yfirfærslu fyrir yfirfærslurhóp í bið. |
| Stop-MigrationBatch | Stövða vinnslu yfirfærsluhóps sem er í gangi. |
| Test-MigrationServerAvailability | Staðfestir að þú getir átt í samskiptum við innanhússpóstþjón sem hýsir pósthólfsgögnin sem þú vilt yfirfæra í pósthólf í skýi. |
| Get-MigrationStatus | Skoða upplýsingar um allar yfirfærslur sem eru í gangi. |
| Get-MigrationUser | Skoða upplýsingar um stöðu pósthólfs staks notanda eða pósthólf allra notenda í flutningshópnum sem verið er að vinna. |
| Get-MigrationUserStatistics | Skoða upplýsingar um stöðu flutnings staks innanhússpósthólfs yfir í skýið. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, úthluta og fjarlægja heimildir sem veittar hafa verið til notenda á léninu þínu.
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, eyða og breyta hlutverkahópum kerfisstjóra. Hlutverkahópur stjórnanda er alhliða öryggishópur með stjórnunarréttindi. Frekari upplýsingar er að finna í Hlutverkahópar stjórnenda.
| Smáskipun (cmdlet) | Færibreyta |
|---|---|
| Get-RoleGroup | Skoða upplýsingar um tiltekna hlutverkahópa eða sækja lista yfir hlutverkahópa í póstskipaninni. |
| New-RoleGroup | Búa til hlutverkahóp. |
| Remove-RoleGroup | Eyða hlutverkahópi. |
| Set-RoleGroup | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi hlutverkahóps. |
| Add-RoleGroupMember | Bæta viðtakanda við fyrirliggjandi hlutverkahóp. |
| Get-RoleGroupMember | Skoða meðlimi í fyrirliggjandi hlutverkahópi. |
| Remove-RoleGroupMember | Eyða viðtakanda úr aðild að hlutverkahópi. |
| Update-RoleGroupMember | Skrifa yfir núverandi aðild að hlutverkahópi. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, eyða og breyta úthlutunarreglum. Svokallaðar Úthlutunarreglur hlutverka eru söfn eins eða fleiri stjórnunarhlutverka notenda sem gera notendum kleift að stjórna stillingum fyrir reikningana sína og dreifingarhópa. Frekari upplýsingar er að finna í Hlutverkaúthlutunarreglur.
Ath.: Í Live@edu póstskipunum er ekki hægt að búa til, eyða eða breyta eiginleikum úthlutunarreglu. Hins vegar er hægt að bæta við eða fjarlægja notendahlutverk sem úthlutað er til hlutverkaúthlutunarreglu.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-RoleAssignmentPolicy | Skoða upplýsingar um tilteknar hlutverkaúthlutunarreglur eða sækja lista yfir hlutverkaúthlutunarreglur í póstskipaninni. |
| New-RoleAssignmentPolicy | Búa til nýja úthlutunarreglu hlutverka. |
| Remove-RoleAssignmentPolicy | Eyða úthlutunarreglu hlutverka. |
| Set-RoleAssignmentPolicy | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi úthlutunarreglu hlutverka. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að stýra hlutverkum með hlutverkamiðuðum aðgangsstýringum innan póstskipaninnar. Þú notar hlutverkamiðaðar aðgangsstýringar til að úthluta notendum heimildir. Stjórnunarhlutverk skilgreina allar heimildir og aðgengi. Stjórnunarhlutverk er einnig kallað RBAC-hlutverk eða einfaldlega hlutverk og það skilgreinir að hverju notendur hafa aðgang og hvaða verk þeir geta framkvæmt. Frekari upplýsingar er að finna í Hlutverkamiðuð aðgangsstýring.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-ManagementRole | Skoða stjórnunarhlutverk sem í boði eru í póstskipaninni. |
| New-ManagementRole | Búa til nýtt stjórnunarhlutverk sem byggir á fyrirliggjandi hlutverki. |
| Remove-ManagementRole | Fjarlægja stjórnunarhlutverk. Þú getur einungis fjarlægt hlutverk sem þú hefur búið til. Þú getur ekki fjarlægt innbyggð hlutverk. |
| Get-ManagementRoleAssignment | Skoða stjórnunarhlutverk sem þegar er úthlutað til tiltekins notanda. |
| New-ManagementRoleAssignment | Úthluta nýju stjórnunarhlutverki til notanda. |
| Remove-ManagementRoleAssignment | Fjarlægja stjórnunarhlutverk frá notanda. |
| Set-ManagementRoleAssignment | Breyta stillingum á úthlutun stjórnunarhlutverka, svo sem tengdu stjórnunarumfangi. |
| Add-ManagementRoleEntry | Bæta aðgangi að tiltekinni smáskipun og færibreytum við stjórnunarhlutverk sem fyrir er. |
| Get-ManagementRoleEntry | Skoða smáskipanir og færibreytur sem í boði eru fyrir fyrirliggjandi stjórnunarhlutverk. |
| Remove-ManagementRoleEntry | Fjarlægja aðgang að smáskipun frá fyrirliggjandi stjórnunarhlutverki. |
| Set-ManagementRoleEntry | Bæta við eða fjarlægja aðgang að færibreytu. |
| Get-ManagementScope | Skoða stjórnunarumfang sem skilgreint er fyrir póstskipan þína. Stjórnunarumfang ákvarðar þá hluti sem standa notanda til boða. Til dæmis er stjórnunarumfang fyrir dæmigerðan notanda takmarkað við reikning hans eða hennar. Stjórnunarumfang hjá stjórnanda póstskipanar nær til allra hluta í léninu. |
| New-ManagementScope | Skilgreina nýtt stjórnunarumfang. |
| Remove-ManagementScope | Fjarlægja stjórnunarumfang. Þú getur einungis fjarlægt stjórnunarumfang sem þú hefur skilgreint. |
| Set-ManagementScope | Breyta skilgreiningu á fyrirliggjandi stjórnunarumfangi. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, úthluta og afturkalla heimildir fyrir pósthólf og möppur í pósthólfum.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Add-MailboxPermission | Veita notanda heimild til að opna pósthólf annars notanda. |
| Get-MailboxPermission | Skoða heimildir sem úthlutað hefur verið til pósthólfs notanda. |
| Remove-MailboxPermission | Fjarlægja heimildir frá notanda til fjarlægja aðgang að pósthólfi annars notanda. |
| Add-MailboxFolderPermission | Veita notanda heimild til að opna möppu í pósthólfi annars notanda. Til dæmis geturðu veitt notanda heimild til að stjórna dagbók annars notanda. Viðtökumappan er tilgreind í þessu sniði: alias:\foldername. |
| Get-MailboxFolderPermission | Skoða úthlutaðar heimildir til að opna tiltekna möppu í pósthólfi notanda. |
| Set-MailboxFolderPermission | Breyta heimildum sem úthlutað er á tiltekna möppu í pósthólfi notanda. |
| Remove-MailboxFolderPermission | Fjarlægja heimildir frá notanda til fjarlægja aðgang að tiltekinni möppu í pósthólfi annars notanda. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, úthluta og afturkalla Senda sem heimildir. Heimildin Senda sem, einnig þekkt sem heimildin SendAs, gefur notanda leyfi til að nota netfang annars viðtakanda sem netfang sendandans. Frekari upplýsingar er að finna í Veita notendum heimildina Senda sem.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Add-RecipientPermission | Veita notendum heimildina Senda sem. |
| Get-RecipientPermission | Skoða heimildina Senda sem úthlutað er til notenda. |
| Remove-RecipientPermission | Afturkalla heimildina Senda sem frá notendum. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að auðvelda póstskipaninni að vinna í samræmi við lagalegar kröfur eða kröfur fyrirtækis.
Notaður þessar smáskipanir til að leita í pósthólfum í póstskipanarinnar að tölvupósti og öðrum tegundum skeyta sem innihalda tiltekin leitarorð. Þessar smáskipanir eru aðeins skilgreindar í hlutverkinu Pósthólfsleit og ætti að úthluta til leitarstjóra. Til nota smáskipunina pósthólfsleit verður þú að vera meðlimur í stjórnendahópi leitar. Frekari upplýsingar er að finna í Veita notendum aðgang að leit í mörgum pósthólfum.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MailboxSearch | Skoða leitaraðgerðir í mörgum pósthólfum sem eru í gangi, lokið eða hafa verið stöðvaðar. |
| New-MailboxSearch | Búa til nýja leit í mörgum pósthólfum. Þú skilgreinir leitarbreytur með þessari smáskipun en keyrir í raun leitina með smáskipuninni Start-MailboxSearch cmdlet. |
| Remove-MailboxSearch | Fjarlægja leit í mörgum pósthólfum. |
| Search-Mailbox | Leita í pósthólfi og afrita niðurstöðurnar á tiltekið pósthólf, eyða skeytum úr upprunalega pósthólfinu, eða bæði. Ath. Þessi smáskipun er einnig tiltæk í hlutverkinu Flytja inn/flytja út pósthólf. Að sjálfgefnu er hlutverkinu Flytja inn/flytja út pósthólf ekki úthlutað á neinn hlutverkahóp. |
| Set-MailboxSearch | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi leitar í mörgum pósthólfum. |
| Start-MailboxSearch | Hefja eða halda áfram fyrirliggjandi leit í mörgum pósthólfun sem búin var til með smáskipuninni New-MailboxSearch. |
| Stop-MailboxSearch | Stöðva yfirstandandi leit í mörgum pósthólfum. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, grunnstilla og eyða viðtakandahlutum. Þú getur notað flutningsreglur til að stjórna flæði tölvupósts í póstskipaninni. Þú skilgreinir sérstakar eigindir fyrir skeyti, eða skilyrði, og aðgerðir sem þú vilt að gildi um skeyti sem innihalda eigindirnar. Frekari upplýsingar er að finna í Reglur fyrir alla póstskipanina.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Disable-TransportRule | Gera flutningsreglu óvirka. |
| Enable-TransportRule | Gera flutningsreglu virka. |
| Get-TransportRule | Skoða upplýsingar um tilteknar flutningsreglur eða sækja lista yfir flutningsreglur í póstskipaninni. |
| New-TransportRule | Búa til flutningsreglu. |
| Remove-TransportRule | Eyða flutningsreglu. |
| Set-TransportRule | Breyta eiginleikum flutningsreglu. |
| Get-TransportRuleAction | Skoða upplýsingar um tilteknar aðgerðir flutningsreglu eða sækja lista yfir tiltækar aðgerðir flutningsreglu í póstskipaninni. |
| Get-TransportRulePredicate | Skoða upplýsingar um tilteknar fullyrðingar flutningsreglu eða sækja lista yfir tiltækar fullyrðingar flutningsreglu í póstskipaninni. Hægt er að nota fullyrðingar flutningsreglu sem skilyrði eða undantekningu í flutningsreglu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskiptanir til að skoða og stilla umsjónarreglur í Live@edu póstskipunum. Eftirlitsreglur stjórna því hverjir geta sent tölvupóst til og móttekið tölvupóst frá notendum í þinni póstskipan og síað og hafnað tölvupósti sem inniheldur óæskileg orð. Frekari upplýsingar er að finna í Umsjónarreglur.
Ath. Umsjónarreglur eru ekki til staðar í Microsoft Office 365.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Add-SupervisionListEntry | Bæta við færslu við heimildarlistann eða höfnunarlista yfir tilgreinda notendur. |
| Get-SupervisionListEntry | Skoða heimildarfærslu og höfnunarfærslu fyrir tilgreindan notanda. |
| Remove-SupervisionListEntry | Fjarlægja færslu af heimildar- eða höfnunarlista tiltekins notanda. |
| Get-SupervisionPolicy | Skoða stillingar á eftirlitsreglum fyrir póstskipanina. |
| Set-SupervisionPolicy | Grunnstilla eftirlitsreglu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og stilla eiginleika fyrir stjórnun upplýsingaréttinda (IRM, information rights management) í póstskipaninni. Stjórnun upplýsingaréttinda (IRM) veitir vernd til að stýra hver getur nálgast, framsent, prentað eða afritað viðkvæm gögn innan tölvupósts. Frekari upplýsingar er að finna í Setja upp og stjórna Stjórnun upplýsingaréttinda í Exchange Online.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-IRMConfiguration | Skoða IRM-stillingar í póstskipaninni. |
| Set-IRMConfiguration | Breyta eiginleikum IRM-stillingar í póstskipaninni. |
| Test-IRMConfiguration | Prófa virkni IRM-stillingar í póstskipaninni. |
| Get-RMSTemplate | Skoða upplýsingar um sérstök réttindastefnusniðmát réttindaþjónustu Active Directory (AD RMS) eða sækja lista yfir sniðmátin í póstskipanina. |
| Set-RMSTemplate | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi réttindastefnusniðmáts AD RMS. |
| Get-RMSTrustedPublishingDomain | Skoða stillingar fyrirliggjandi trausts útgáfuléns í póstskipaninni. Traust útgáfulén geymir nausynlega stillingar til að nota RMS-eiginleika í póstskipaninni. Notendur geta t.d. notað AD RMS réttindastefnusniðmát í tölvupóstskeytum. |
| Import-RMSTrustedPublishingDomain | Flytja traust útgáfulén úr innanhúss þjóni sem keyrir AD RMS inn í póstskipanina. |
| Remove-RMSTrustedPublishingDomain | Fjarlægja fyrirliggjandi traust útgáfulén sem þú fluttir inn í póstskipanina. |
| Set-RMSTrustedPublishingDomain | Skoða eiginleika fyrirliggjandi trausts útgáfuléns í póstskipaninni. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og stilla búa til Outlook-verndarreglur. Outlook-verndarreglur eru reglur sem stjórnendur búa til og notaðar eru áður en notandi sendir skeyti með Outlook. Outlook-verndarreglur nota sjálfkrafa AD RMS réttindastefnusniðmát á þessi skeyti áður en þau eru send.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Disable-OutlookProtectionRule | Gera Outlook-verndarreglu óvirka. |
| Enable-OutlookProtectionRule | Gera Outlook-verndarreglu virka. |
| Get-OutlookProtectionRule | Skoða upplýsingar um tiltekna Outlook-verndarreglu eða sækja lista yfir Outlook-verndarreglur í póstskipaninni. |
| New-OutlookProtectionRule | Búa til Outlook-verndarreglu. |
| Remove-OutlookProtectionRule | Eyða Outlook-verndarreglu. |
| Set-OutlookProtectionRule | Breyta eiginleikum Outlook-verndarreglu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða , búa til, fjarlægja og stilla varðveislureglur í póstskipaninni. Varðveisluregla er tengd hópi varðveislureglumerkja sem tilgreina varðveislustillingar fyrir atriði í pósthólfi. Regla kann að innihalda eitt sjálfgefið varðveislustefnumerki og nokkur ósjálfgefin merki. Pósthólf getur eingöngu tengst einni varðveislureglu. Frekari upplýsingar er að finna í Setja upp og stjórna varðveislureglum í Exchange Online.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-RetentionPolicy | Skoða upplýsingar um tilteknar varðveislureglur eða sækja lista yfir varðveislureglur í póstskipaninni. |
| New-RetentionPolicy | Búa til varðveislureglu. |
| Remove-RetentionPolicy | Eyða varðveislureglu. |
| Set-RetentionPolicy | Breyta eiginleikum varðveislureglu. |
| Get-RetentionPolicyTag | Skoða upplýsingar um tiltekin varðveislureglumerki eða sækja lista yfir varðveislureglumerki í póstskipaninni. Varðveislureglumerki eru notuð til að beita varðveislustillingum á skeyti eða möppur. |
| New-RetentionPolicyTag | Búa til varðveislureglumerki. |
| Remove-RetentionPolicyTag | Eyða varðveislureglumerki. |
| Set-RetentionPolicyTag | Breyta eiginleikum varðveislureglumerkis. |
| Start-ManagedFolderAssistant | Beita þegar í stað varðveislureglu sem stillt er fyrir tiltekið pósthólf. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða , búa til, fjarlægja og stilla varðveislureglur í póstskipaninni. Eftir að þú býrð til skeytaflokkun geta notendur beitt þeim á skeyti með Outlook Web App eða með flutningsreglum. Einnig er hægt að nota flokkun sem skilyrði eða undantekningu í flutningsreglu.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MessageClassification | Skoða upplýsingar um tiltekna skeytaflokkun eða sækja lista yfir skeytaflokkun í póstskipaninni. |
| New-MessageClassification | Búa til skeytaflokkun. |
| Remove-MessageClassification | Eyða skeytaflokkun. |
| Set-MessageClassification | Breyta eiginleikum skeytaflokkunar. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða og stilla söfnunar- og skráningarstillingar fyrir póstskipanina. Frekari upplýsingar má finna í eftirfarandi efnisatriðum:
Ath. Geymsla er ekki í boði fyrir Live@edu póstskipanir.
| Smáskipanir | Lýsing |
|---|---|
| Disable-Mailbox | Loka safni fyrir fyrirliggjandi pósthólf með færibreytunni Archive. |
| Enable-Mailbox | Opna safn fyrir fyrirliggjandi pósthólf með færibreytunni Archive . |
| Disable-JournalRule | Gera skráningarreglu óvirka. Skráningarreglur eru notaðar til að skrá eða tölvupóstskeyti sem send eru til eða frá tilteknum viðtakendum. Þegar skeyti samsvarar skilyrðunum sem skilgreind eru í skráningarreglunni er það skráð. |
| Enable-JournalRule | Gera skráningarreglu virka. |
| Get-JournalRule | Skoða upplýsingar um tilteknar skráningarreglur eða sækja lista yfir skráningarreglur í póstskipaninni. |
| New-JournalRule | Búa til samskiptaskrárreglu. |
| Remove-JournalRule | Eyða skráningarreglu. |
| Set-JournalRule | Breyta eiginleikum flutningsreglu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða skýrslur og talnagögn fyrir lénið póstskipanina.
Notaðu þessar smáskipanir til að stilla endurskoðunarskráningu og skoða endurskoðunarskýrslur. Endurskoðunarskráning skráir tilteknar aðgerðir tiltekinna notenda. Frekari upplýsingar er að finna í Nota endurskoðunarskráningu til að skrá aðgerðir notanda.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Search-AdminAuditLog | Leita í efni endurksoðunarskrár stjórnanda. |
| Write-AdminAuditLog | Bæta athugasemd við endurskoðunarskrá stjórnanda. |
| Get-AdminAuditLogConfig | Skoða grunnstillingar fyrir núverandi endurskoðunarskráningu stjórnanda. |
| New-AdminAuditLogSearch | Leita í efni endurskoðunarskrár stjórnanda og senda niðurstöður til viðtakenda sem þú tilgreinir. |
| Get-MailboxAuditBypassAssociation | Skoða reikninga sem undanþegnir eru endurskoðunarskráningu pósthólfa. |
| Set-MailboxAuditBypassAssociation | Tilgreina reikninga sem undanþegnir eru endurskoðunarskráningu pósthólfa. Þú getur t.d. tilgreint þjónustureikninga sem fara reglulega inn á pósthólf til að minnka óþarfa færslur í endurskoðunarskráninum. |
| Search-MailboxAuditLog | Leita í efni endurksoðunarskrár pósthólfs. |
| New-MailboxAuditLogSearch | Leita í efni endurskoðunarskrár pósthólfs og senda niðurstöður til viðtakenda sem þú tilgreinir. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að fylgjast með afhendingarskýrslum um skilaboð sem send eru frá eða í tiltekin pósthólf í póstskipaninni. Frekari upplýsingar er að finna í Afhendingarskýrslur fyrir stjórnendur.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-MessageTrackingReport | Birtir gögn fyrir tiltekna skeytarakningarskýrslu. Þessi smáskipun krefst þess að þú tilgreinir auðkenni fyrir þá skýrslu sem þú vilt skoða. Þessvegna þarftu fyrst að nota smáskipunina Search-MessageTrackingReport til að finna skýrsluauðkenni fyrir tiltekið skeyti. Þá flyturðu skýrsluauðkenni úr niðurstöðu Search-MessageTrackingReport yfir í Get-MessageTrackingReport smáskipunina. |
| Search-MessageTrackingReport | Finna skeytarakningarskýrslu á grunvelli leitarskilyrða. Þá geturðu flutt skýrsluauðkennið úr niðurstöðu Get-MessageTrackingReport smáskipunina til að fá ítarlegar upplýsingar. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-FailedContentIndexDocuments | Skoða lista yfir skjöl í pósthólfi sem ekki er hægt að skrá með leit í Exchange. |
| Get-LogonStatistics | Skoða upplýsingar um opnar innskráningarlotur í tilteknu pósthólfi, eins og um notandanafn, innskráðan tíma og síðasta aðgangstíma. Notandi verður að skrá sig út til að loka innskráningarlotu, því geta birst margar lotur fyrir notendur sem aðeins loka vafranum. |
| Get-MailboxFolderStatistics | Skoða upplýsingar um möppur í tilteknu pósthólfi, þ.m.t. fjölda og stærð atriða í möppunni, heiti hennar og auðkenni ásamt öðrum upplýsingum. |
| Get-MailboxStatistics | Skoða upplýsingar um tiltekið pósthólf, eins og um stærð pósthólfsins, fjölda skeyta sem þar eru og hvenær það var síðast opnað. |
| Get-RecipientStatisticsReport | Skoða upplýsingar um heildarfjölda viðtakenda í póstskipuninni, þ.m.t. fjölda pósthólfa, virk pósthólf, tengiliði og dreifingarhópa. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða og grunstilla stillingar innri og ytri léna sem skilgreind eru í pósskipaninni.
Nota þessar smáskipanir til að skoða og stilla samþykkt lén. Samþykkt lén er hvaða SMTP-nafnrými sem er sem skýjapóstskipanin sendir eða móttekur tölvupóst fyrir. Frekari upplýsingar eru í Samþykkt lén.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-AcceptedDomain | Skoða grunnstillingarupplýsingar fyrir öll samþykkt lén eða tiltekin samþykkt lén. |
| Set-AcceptedDomain | Grunnstilla stillingar fyrir samþykkt lén sem þú hefur skráð í tölvupóstþjónustu í skýi. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða, búa til, grunnstilla og eyða fjartengd lén. Fjarlén skilgreina póstflæðisstillingar út frá viðtökuléni hvers tölvupóstskeytis. Frekari upplýsingar er að finna í Fjartengd lén.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-RemoteDomain | Skoða grunnstillingarupplýsingar fyrir öll ytri lén eða tiltekin ytri lén. |
| New-RemoteDomain | Búa til færslu fyrir nýtt fjarlén þannig að hægt sé að grunnstilla skeytissnið og reglur fyrir skeyti sem send eru á það lén. |
| Remove-RemoteDomain | Fjarlægja færslu ytra léns. |
| Set-RemoteDomain | Grunnstilla skeytissnið og stillingar reglu fyrir færslur fyrirliggjandi ytra léns. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að grunnstilla og stjórna því hvernig notendur fá aðgang að tölvupóstþjónustu í skýi.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-CASMailbox | Skoða samskiptareglurnar sem eru virkar fyrir tengingar biðlara fyrir eitt eða fleiri pósthólf í póstskipaninni. |
| Set-CASMailbox | Grunnstilla samskiptareglur fyrir aðgangstengingu biðlara sem eru virkar fyrir tiltekið pósthólf. |
| Get-CASMailboxPlan | Skoða sjálfgefnar aðgangsstillingar biðlara sem eru notaðar í nýjum pósthólfum í póstskipaninni. |
| Get-OWAMailboxPolicy | Skoða stefnurnar sem nota má á pósthólf sem tengjast með Outlook Web App og grunnstillingar fyrir þessar stefnur. |
| Get-MailboxPlan | Skoða upplýsingar um pósthólfsáætlanir í póstskipan þinni og stillingar þeirra. Pósthólfsáætlun er sniðmát fyrir notandaúthlutun. |
| Set-MailboxPlan | Breyta nafni til birtingar á pósthólfsáætlun eða velja aðra pósthólfsáætlun sem sjálfgefna. |
| New-OWAMailboxPolicy | Búa til nýja stefnu sem nota má á pósthólf í póstskipan þinni til að framfylgja stillingum Outlook Web App tenginga. |
| Remove-OWAMailboxPolicy | Fjarlægja fyrirliggjandi stefnu sem notuð er til að framfylgja stillingum á Outlook Web App tengingum. |
| Set-OwaMailboxPolicy | Grunnstilla fyrirliggjandi stefnu sem er notuð á pósthólfin í póstskipaninni til að framfylgja stillingum Outlook Web App tenginga. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og grunstilla stillingar í alltri póstskipaninni.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-OrganizationConfig | Skoða upplýsingar um ýmsar stillingar í póstskipaninni. |
| Set-OrganizationConfig | Grunnstilla ýmsar stillingar í póstskipaninni. |
| Get-TransportConfig | Skoða grunnstillingu flutnings, svo sem tungumálið sem notað til að senda afhendingarstöðu (Delivery Status Notifications (DSN)). |
| Set-TransportConfig | Breyta grunnstillingum flutnings, svo sem tungumáli afhendingarstöðu (DSN). |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Smáforritið fær RBAC-hlutverkið ApplicationImpersonation og notar vefþjónustu Microsoft Exchange (EWS) til að leyfa aðgang forrita að pósthólfum Exchange Online. Frekari upplýsingar má finna í þessu efnisatriði á MSDN.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Impersonate-ExchangeUser | Gefur tilteknum þjónustureikningi forritsaðgang að pósthólfum notenda. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og grunnstilla sameinaða miðlun og blandaða innleiðingu í póstskipaninni.
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og setja upp stillingar sameinaðrar miðlunar innan lénsins. Sameinuð miðlun, einnig kölluð sameinuð samnýting, notar Microsoft Federation Gateway, skýjaþjónustu frá Microsoft, sem traustan miðlara á milli innanhússpóstskipanar þinnar í Microsoft Exhange Server 2010 og skýjapósthólfsins þíns. Frekari upplýsingar er að finna í Grunnstilla sameinaða miðlun í skýinu.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-FederatedOrganizationIdentifier | Skoða auðkenni sameinaðrar póstskipanar og tengdar upplýsingar, s.s. sameinuð lén, tengilið póstskipanar og stöðu. |
| Set-FederatedOrganizationIdentifier | Grunnstilla auðkenni sameinaðrar póstskipanar. |
| Get-FederationInformation | Skoða upplýsingar fyrir sameiningu, þ.m.t. sameinuð lénsheiti og markslóðir, frá utanaðkomandi Exchange-póstskipan. |
| Get-FederationTrust | Skoða traust í bandalögum sem sett er fram fyrir póstskipanina. |
| Get-OrganizationRelationship | Skoða stillingar fyrir vensl sameinaðrar miðluna fyrir samnýtingu á laus/upptekin/n eða öruggri miðlun skeyta á milli póstskipana. |
| New-OrganizationRelationship | Útbúa vensl sameinaðrar miðlunar á milli póstskipana. |
| Remove-OrganizationRelationship | Fjarlægja vensl sameinaðrar miðlunar á milla póstskipana. |
| Set-OrganizationRelationship | Stilla vensl sameinaðrar miðlunar á milli póstskipana. |
| Test-OrganizationRelationship | Staðfesta að vensl sameinaðrar miðlunar á milli póstskipana séu rétt stillt og virki með réttum hætti. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Nota þessar smáskipanir til að skoða og stilla samnýtingarreglur. Samnýtingarreglur stýra hverning notendur innan póstskipanar geta samnýtt dagatöl og tengiliðaupplýsingar með notendum utan póstskipanarinnar.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-SharingPolicy | Skoða upplýsingar um tilteknar samnýtingarreglur eða sækja lista yfir samnýtingarreglur í póstskipaninni. |
| New-SharingPolicy | Búa til nýja samnýtingarreglu. |
| Remove-SharingPolicy | Eyða samnýtingarreglu. Áður en þú getur eytt samnýtingarreglu þarftu að staðfesta að reglunni hafi ekki verið úthlutað á eitthvað pósthólf. |
| Set-SharingPolicy | Breyta stillingum fyrirliggjandi samnýtingarreglu. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessi smáforrit til að skoða og grunnstilla viðveruupplýsingar sem póstskipanin deilir með öðrum póstskipunum.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Add-AvailabilityAddressSpace | Skilgreina aðgangsaðgerð og tengd skilríki sem notuð eru til að miðla viðveruupplýsingum á milli póstskipana. |
| Get-AvailabilityAddressSpace | Skoða upplýsingar um hvernig Exchange-póstskipan er grunnstillt til að miðla viðveruupplýsingum á milli póstskipana. |
| Remove-AvailabilityAddressSpace | Fjarlægja áður skilgreint vistfangspláss fyrir viðveru og tengd skilríki sem notuð eru í viðverubeiðnum á milli póstskipana. |
| Get-AvailabilityConfig | Skoða reikninga sem treyst er til að miðla viðveruupplýsingum á milli póstskipana. |
| New-AvailabilityConfig | Búa til miðlun viðveruupplýsinga milli póstskipana. |
| Remove-AvailabilityConfig | Fjarlægja áður grunnstillta miðlun viðveruupplýsinga milli póstskipana. |
| Set-AvailabilityConfig | Grunnstilla aðgangsstig fyrir viðveruupplýsingar. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að flytja pósthólf á milli póskipanar í skýi og innanhúss Exchange-póstskipanar. Þegar pósthólf eru flutt á milli skýsins og innanhúss póstskipanar þar að nota blandaða uppssetningu. Frekari upplýsingar er að finna í Exchange Hybrid Deployment and Migration with Office 365.
| Smáskipanir | Lýsing |
|---|---|
| Get-MoveRequest | Skoða stöðu á pósthólfsflutningi í gangi sem ræstur var með smáskipuninni New-MoveRequest. |
| New-MoveRequest | Útbúa nýjan pósthólfsflutning. |
| Remove-MoveRequest | Hætta við pósthólfsflutning sem var ræstur með smáskipuninni New-MoveRequest. |
| Resume-MoveRequest | Halda áfram flutningi sem var hætt eða sem mistókst. |
| Set-MoveRequest | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi flutningsbeiðni. |
| Suspend-MoveRequest | Fresta flutningsbeiðni áður en hún nær stöðunni CompletionInProgress. |
| Get-MoveRequestStatistics | Skoða ítarlegar upplýsingar um flutningsbeiðni. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og grunnstilla pósthólfsstillingar notanda sem mögulegar eru í Outlook Web App > Valkostir. Sjá Opna síðuna Valkostir hjá öðrum notanda um hvernig síðan Valkostir er opnuð.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Get-CalendarNotification | Skoða tilkynningarreglur dagbókar í pósthólfi notanda. Notendur geta fengið tilkynningar með textaskilaboðum um breytingar í viðburðum og dagskrá í dagbókinni. |
| Get-CalendarProcessing | Skoða vinnslustillingar dagbókar fyrir tiltekið pósthólf. Dæmigerð gildi eru AutoUpdate fyrir pósthólf notenda AutoAccept fyrir pósthólf herbergis eða búnaðar. |
| Set-CalendarProcessing | Breyta vinnslustillingum dagbókar fyrir tiltekið pósthólf. Einnig er hægt að stilla allar stillingar tilfangs fyrir pósthólf herbergis eða búnaðar. |
| Disable-InboxRule | Gera innhólfsreglu óvirka í pósthólfi notanda. Innhólfsreglur fara með skeyti í innhólfi samkvæmt tilgreindum skilyrðum og framkvæma aðgerðir, s.s. að flytja skeyti í tiltekna möppur eða eyða þeim. Ath.: Þegar þú býrð til, breytir, fjarlægir eða gerir innhólfsreglu virka eða óvirka verða reglur hjá þjóninum sem Microsoft Outlook býr til fjarlægðar. |
| Enable-InboxRule | Gera innhólfsreglu virka í pósthólfi notanda. |
| Get-InboxRule | Skoða upplýsingar um tiltekna innhólfsreglu eða sækja lista yfir innhólfsreglur í pósthólfi notanda. |
| New-InboxRule | Búa til innhólfsreglu í pósthólfi notanda. |
| Remove-InboxRule | Eyða innhólfsreglu í pósthólfi notanda. |
| Set-InboxRule | Breyta eiginleikum innhólfsreglu í pósthólfi notanda. |
| Get-MailboxAutoReplyConfiguration | Skoða stillingar fyrir sjálfvirka svörun í pósthólfi notanda. |
| Set-MailboxAutoReplyConfiguration | Grunnstilla sjálfvirka svörun í pósthólfi notanda. |
| Get-MailboxCalendarConfiguration | Skoða stillingar fyrir dagbók í pósthólfi notanda. |
| Set-MailboxCalendarConfiguration | Breyta stillingum fyrir dagbók notanda. Þessar stillingar hafa áhrif á útlit dagbókar og hvernig áminningar virka í Outlook Web App. Þær skilgreina einnig með hvaða hætti fundarboð, svör og tilkynningar eru send til notanda. |
| Get-MailboxCalendarFolder | Skoða upplýsingar um dagbókarmöppu notanda. Þessar upplýsingar fela m.a. í sér heiti möppunnar, með hvaða hætti hún birtist eða er samnýtt, upphafs- og lokadag daga sem eru birtir, hversu nákvæmar dagbókarupplýsingar eru, hvort hæg sé að leita að slóð dagbókarinnar á netinu og sjálfa slóð dagbókarinnar. |
| Set-MailboxCalendarFolder | Breyta útgáfu- eða samnýtingarstillingum dagbókarmöppu í pósthólfi notanda. |
| Get-MailboxJunkEmailConfiguration | Skoða stillingar ruslpóstsreglu fyrir pósthólf notanda. |
| Set-MailboxJunkEmailConfiguration | Breyta stillingum ruslpóstsreglu fyrir pósthólf notanda. |
| Get-MailboxMessageConfiguration | Skoða stillingar tölvupóstskeyta í pósthólfi notanda. Þessar stilligar eru m.a. undirskrift, snið skeytisins, valkostir, staðfesting á lestri, lestrarrúða og samtöl. |
| Set-MailboxMessageConfiguration | Breyta stillingum tölvupóstskeyta í pósthólfi notanda. |
| Get-MailboxRegionalConfiguration | Skoða svæðisbundnar stillingar í pósthólfi notanda. Þessar stillingar eru m.a. tímabelti, tímasnið, dagsetning og tungumál. |
| Set-MailboxRegionalConfiguration | Breyta svæðisbundnum stillingum fyrir pósthólf notanda. |
| Get-MailboxSpellingConfiguration | Skoða villuleitarstillingar Outlook Web App fyrir pósthólf notanda. Þessar stillingar eru m.a. tungumál orðabókar og að hunsa orð með tölum og orð að fullu með hástöfum. |
| Set-MailboxSpellingConfiguration | Breyta stillingum villuleitar Outlook Web App í pósthólfi notanda. |
| Get-MessageCategory | Skoða upplýsingar um tiltekinn skeytaflokk eða sækja lista yfir skeytaflokka í pósthólfi notanda. |
| Get-SendAddress | Skoða neföng í pósthólfi notanda sem hægt er að stilla sem sjálfgefið sendingarnetfang. Þetta á aðeins við hafi notandinn tengt POP, IMAP eða Hotmail áskrift við pósthólfið. Sjálfgefið sendingarnetfang er stillt í færibreytunni SendAddressDefault í smáskipuninni Set-MailboxMessageConfiguration . Notandinn getur skrifað yfir sjálfgefið sendingarnetfang þegar þeir skrifa nýtt skeyti í Outlook Web App. |
| Get-TextMessagingAccount | Skoða SMS-stillingar í pósthólfi notanda. Þessar stillingar eru m.a. hvort Microsoft Exchange ActiveSync sé virkt, lands- eða svæðisnúmer notandans, auðkenni símafyrirtækisins, auðkenni farsímaþjónustunnar og símanúmerið sem senda á tilkynningar í. |
| Import-ContactList | Flytja tengiliði notanda í pósthólf í skýi úr .csv-skrá (comma separated value). |
| Get-HotmailSubscription | Skoða stillingar Hotmail-áskriftar sem er grunnstillt fyrir tiltekið pósthólf. |
| Set-HotmailSubscription | Breyta stillingum Hotmail-áskriftar sem er grunnstillt fyrir tiltekið pósthólf. |
| Get-ImapSubscription | Skoða upplýsingar um IMAP-áskrift eða tengdan reikning, fyrir tiltekið pósthólf. Notaðu þessa skipun til að hjálpa til við úrræðaleit vegna IMAP-tengingar notenda. |
| Set-ImapSubscription | Grunnstilla IMAP-áskrift fyrir tiltekið pósthólf. |
| Get-PopSubscription | Skoða upplýsingar POP-áskriftar fyrir tiltekið pósthólf. Notaðu þessa skipun til að hjálpa til við úrræðaleit vegna POP-tengingar notenda. |
| Set-PopSubscription | Grunnstilla POP-áskrift fyrir tiltekið pósthólf. |
| Get-Subscription | Skoða áskriftir að ytri tölvupóstreikningum fyrir tiltekið pósthólf. Notaðu þessa skipun þegar þú ert óviss um hvers konar áskrift notandi hefur grunnstillt. |
| Remove-Subscription | Fjarlægja áskrift að ytri tölvupóstreikningi úr pósthólfi notanda. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og stilla xchange ActiveSync fyrir póstskipanina. Frekari upplýsingar er að finna í Umsjón með Exchange ActiveSync fyrir póstskipanina.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Clear-ActiveSyncDevice | Fjarlægja innihald fartækis sem notar Exchange ActiveSync til að tengjast pósthólfi í póstskipaninni. Þessi skipun er venjulega notuð þegar tæki glatast eða er stolið. |
| Get-ActiveSyncDevice | Skoða lista yfir fartæki sem nota Exchange ActiveSync til að tengjast pósthólfum í póstskipaninni. |
| Remove-ActiveSyncDevice | Fjarlægja Exchange ActiveSync-tengingar fyrir fartæki úr pósthólfi. Þú þarft að þekkja heiti fartækisins og pósthólfs notandans. |
| Get-ActiveSyncDeviceAccessRule | Skoða reglu um tækisaðgang Exchange ActiveSync sem þú hefur stofnað með smáskipuninni New-ActiveSyncDeviceAccessRule. |
| New-ActiveSyncDeviceAccessRule | Útbúa reglu um tækisaðgang Exchange ActiveSync til að gera notendum kleift að samstilla pósthólfin sín við tilteknar línur eða gerðir farsíma. |
| Remove-ActiveSyncDeviceAccessRule | Fjarlægja fyrirliggjandi reglu um tækisaðgang fyrir Exchange ActiveSync úr póstskipaninni. |
| Set-ActiveSyncDeviceAccessRule | Stilla fyrirliggjandi reglur um tækisaðgang Exchange ActiveSync. |
| Get-ActiveSyncDeviceClass | Skoða lista yfir fartæki sem nota Exchange ActiveSync til að tengjast pósthólfum í póstskipaninni. |
| Get-ActiveSyncDeviceStatistics | Skoða listann yfir farsíma sem grunnstilltir eru til samstillingar við pósthólf tiltekins notanda og tölulegar upplýsingar um samstillinguna fyrir hvert tæki. Upplýsingarnar sem fást innihalda tölulegar upplýsingar eins og síðasta skipti sem samstilling var reynd og auðkenni tækisins. |
| Get-ActiveSyncMailboxPolicy | Skoða stefnurnar sem beita má á Exchange ActiveSync tæki sem tengd eru pósthólfum í póstskipan þinni og grunnstillingar fyrir þessar stefnur. |
| New-ActiveSyncMailboxPolicy | Búa til Exchange ActiveSync reglu sem nota má í pósthólfinum í póstskipanar til að framfylgja stillingum tengingar Exchange ActiveSync tækja. |
| Remove-ActiveSyncMailboxPolicy | Fjarlægja fyrirliggjandi Exchange ActiveSync pósthólfsreglur sem framfylgja stillingum tengdra tækja. |
| Set-ActiveSyncMailboxPolicy | Grunnstilla fyrirliggjandi stefnu sem notuð er á pósthólfin í póstskipan þinn til að framfylgja stillingum tengdra Exchange ActiveSync tækja. |
| Get-ActiveSyncOrganizationSettings | Skoða stillingar Exchange ActiveSync fyrir póstskipanina. |
| Set-ActiveSyncOrganizationSettings | Breyta sjálfgefnum Exchange ActiveSync stillingum fyrir póstskipanina. Þú getur t.d. stillt sjálfgefið aðgangsstig til að heimila, loka fyrir eða setja ný tæki í sóttkví. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Notaðu þessar smáskipanir til að skoða og breyta stillingum UM-kerfis (Unified Messaging) í Microsoft Office 365 fyrir stór fyrirtæki. Frekari upplýsingar er að finna í Nota UM-kerfi til að tengja Exchange við símakerfi.
Ath.: UM-kerfi er ekki í boði fyrir Live@edu póstskipanir.
| Smáskipun (cmdlet) | Lýsing |
|---|---|
| Disable-UMAutoAttendant | Gera fyrirliggjandi virkan sjálfvirkan svarmiðlara óvirkan. Ekki er hægt að gera sjálfvirkan svarmiðlara UM-kerfis óvirkan sé hann tengdur við hringihóp UM-kerfisins með sjálfgefnu UM-hringiáætluninni. |
| Enable-UMAutoAttendant | Gera fyrirliggjandi óvirkan sjálfvirkan svarmiðlara UM-kerfis virkan. Þegar þú býrð til sjálfvirkan svarmiðlara UM-kerfis verður hann ekki virkur sjálfkrafa. Til að sjálfvirkur svarmiðlari geti svarað mótteknum símtölum þarf fyrst að gera hann virkan. |
| Get-UMAutoAttendant | Skoða upplýsingar um tiltekna sjálfvirka svarmiðlara UM-kerfis eða sækja lista yfir slíka miðlara í póstskipaninni. |
| New-UMAutoAttendant | Búa til nýjan sjálfvirkan UM-svarmiðlara. Þegar þú býrð til nýjan sjálfvirkan svarmiðlara UM-kerfis er hann tengdru við eina UM-hringiáætlun sem inniheldur lista yfir innanhússnúmer. |
| Remove-UMAutoAttendant | Eyða sjálfvirkum UM-svarmiðlara. Þetta eyðir einning tilvikum sjálfvirks svarmiðlara UM-kerfis úr tengdum UM-hringiáætlunum. Þegar sjálfvirkum svarmiðlara er eytt svarar hann ekki lengur símtölum í bein númer. |
| Set-UMAutoAttendant | Breyta stillingum fyrirliggjandi sjálfvirkum svarmiðlara UM-kerfis. Ekki er hægt að breyta sumum gildum sjálfvirka svarmiðlarans nema að honum sé eytt og nýrr búinn til. |
| Export-UMCallDataRecord | Flytja út hringigögn UM-kerfis fyrir tiltekna dagsetningu í .csv-skrá (comma separated value). Hægt er að sía hringigögn fyrir tiltekna hringiáæglun og IP-gáttir. Sé IP-gátt ekki tilgreind birtast öll hringigögn. |
| Get-UMCallDataRecord | Skoða hringigögn UM-kerfis fyrir tiltekið pósthólf sem gert hefur verið virkt fyrir UM-kerfi. |
| Get-UMCallSummaryReport | Skoða uppsöfnuð talnagögn fyrir öll móttekin eða hringd símtöl í póstskipan, þ.m.t. talskilaboð, ósvöruð símtöl, aðgang áskrifanda, sjálfvirkan svarmiðlara eða fax-skeyti. |
| Get-UMDialPlan | Skoða upplýsingar um tilteknar UM-hringiáætlanir eða sækja lista yfir UM-hringiáætlanir í póstskipaninni. |
| New-UMDialPlan | Búa til nýja UM-hringiáætlun. |
| Remove-UMDialPlan | Velja UM-hringiáætlun. |
| Set-UMDialPlan | Breyta eiginleikum fyrirliggjandi UM-hringiáætlunar. |
| Get-UMHuntGroup | Skoða upplýsingar um tiltekna UM-hringihópa eða sækja lista yfir UM-hringihópa í póstskipaninni. Ef þú vilt skoða tiltekinn UM-hringihóp þarftu að tilgreina heiti IP-gáttarinnar sem tengist hópnum, t.d. |
| New-UMHuntGroup | Búa til nýjan UM-hringihóp sem notaður er til að tengja innhringingar við tilteknar UM-hringiáætlun. Þú þarft að búa til UM-hringihóp til að heimila samskipti á milli IP-gáttar og hringiáætlunar. |
| Remove-UMHuntGroup | Eyða UM-hringihóp. UM-hringihópur er einnig fjarlægður úr IP-gáttinni. |
| Disable-UMIPGateway | Gera IP-gátt UM-kerfis óvirka. IP-gátt UM-kerfis tekur ekki lengur á móti símtölum né hringir út. |
| Enable-UMIPGateway | Gera IP-gátt UM-kerfis virka. IP-gátt UM-kerfis svarar símtölum og hringir út gegnum IP-gáttina. |
| Get-UMIPGateway | Skoða upplýsingar um tiltekna IP-gátt UM-kerfis eða sækja lista yfir gáttir UM-hringihópa í póstskipaninni. |
| New-UMIPGateway | Búa til nýja UM IP-gátt. |
| Remove-UMIPGateway | Eyða UM IP-gátt. |
| Set-UMIPGateway | Breyta grunnstillingum UM IP-gáttar. |
| Disable-UMMailbox | Eyða UM-eiginleikum í pósthólfi sem gert hefur verið virkt fyrir UM-kerfi. |
| Enable-UMMailbox | Gera UM-eiginleika virka fyrir pósthólf. |
| Get-UMMailbox | Skoða UM-upplýsingar um tiltekin pósthólf sem virka fyrir UM-kerfi eða sækja lista yfir slík pósthólf í póstskipaninni. |
| Set-UMMailbox | Breyta UM-stillingum fyrir pósthólf sem gert hefur verið virkt fyrir UM-kerfi. |
| Get-UMMailboxPIN | Skoða upplýsingar sem fengnar eru með PIN-gögnum sem geymd eru dulkóðuð í pósthólfi notanda sem gert hefur verið virkt fyrir UM-kerfi. Þessi smáskipun sýnir einnig hvort pósthólf eða aðgangur notanda hafir verið útilokaður. |
| Set-UMMailboxPIN | Endurstilla PIN-númer fyrir pósthólf sem gert hefur verið virkt fyrir UM-reikning. |
| Get-UMMailboxPolicy | Skoða upplýsingar um tiltekinmar UM-pósthólfsreglur eða sækja lista yfir slíkar reglur í póstskipaninni. |
| New-UMMailboxPolicy | Búa til nýja UM-pósthólfsstefnu. |
| Remove-UMMailboxPolicy | Eyða UM-pósthólfsreglu. UM-pósthólfsreglu er ekki hægt að eyða sé vísað í hana frá öðrum pósthólfum sem virk eru fyrir UM-kerfi. |
| Set-UMMailboxPolicy | Breyta grunnstillingum fyrirliggjandi UM-pósthólfsreglu. Þessar stillingar eru m.a. PIN-reglur, textastillingar skeyta og hringihömlur. |
| Export-UMPrompt | Flytja út hljóðskrá sem notuð er sem kveðjuávarp fyrir UM-hringiáætlanir og sjálfvirka svarmiðlara. |
| Import-UMPrompt | Flytja inn sérstaka hljóðskrá sem notuð er í UM-hringiáætlunum og sjálfvirkum svarmiðlurum. |
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
Þú getur fengið hjálp fyrir einstakar smáskipanir á skipanalínunni. Notaðu hjálp í skipanalínu til að fá upplýsingar um færibreytur sem notaðar eru með hverri smáskipun og viðeigandi málskipan.
Hjálp í skipanalínu getur skilað misnákvæmum upplýsingum. Notaðu eftirfarandi skipanir til að fá hnitmiðaðri hjálp í skipunarlínunni. Lærðu meira um smáskipunina Get-Help og tengda málskipan í Microsoft Exchange Server hjálpinni: Að fá hjálp. Þó svo þetta efni vísi til Exchange Management Shell fyrir innanhúss notkunar Exchange þá á innihaldið einnig við um skýjaþjónustunar og Windows PowerShell með WinRM.
| Skipunin Hjálp | Lýsing | Dæmi |
|---|---|---|
| Get-Help <cmdlet> | Veitir upplýsingar um notkun og málskipan smáskipunar. | |
| Get-Help <cmdlet> -Examples | Sýnir dæmi um algenga notkun á smáskipun. | |
| Get-Help <cmdlet> -Detailed | Veitir lýsingu á smáskipuninni, málskipan, heildarlista yfir breytur og notkun þeirra auk dæma. | |
Póstskipanir í skýinu hafa aðgang að undirmengi allra Exchange-stjórnunarsmáskipana. Þessar póstskipanir hafa einnig aðgang að undirmengi allra breyta sem tiltækar eru fyrir þessar smáskipanir. Hjálpin í skipanalínunni greinir sem stendur ekki á milli uppsetningar innanhúss og í skýi. Þess vegna sérðu einhverjar smáskipanir og breytur í skipanalínuhjálpinni sem eiga ekki við tölvuþjónustu í skýi.
Almennt geturðu hundsað allar færibreytur sem vísa til efnislegra tilfanga. Ef upp koma villuboð sem segja að færibreyta finnist ekki eða smáskipun þekkist ekki þá ertu líkast til að reyna að nota færibreytu eða smáskipun sem er ekki heimiluð í úthlutun stjórnunarhlutverks þíns eða er ekki gild í póstskipan þinni.
Smáskipanir sem nú eru til staðar fyrir stjórnendur Exchange Online
