Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu
Efni síðast breytt: 2011-11-01
Þú getur notað Outlook Web App og stjórnborð Exchange með næstum hvaða vafra sem er. Þar með talið Internet Explorer Mozilla Firefox, Apple Safari Chrome, og flesta aðra vafra á tölvum sem keyra UNIX, Apple Macintosh eða Windows.
Outlook Web App og Exchange-stjórnborðið
Til að nota alla eiginleika Outlook Web App og stjórnborðs Exchange þarftu að nota eftirfarandi vafra í tölvu sem keyrir á Windows XP, Windows 2003, Windows Vista eða Windows 7:
-
Internet Explorer 7 eða nýrri útgáfur.
-
Firefox 3.0.1 eða nýrri útgáfur.
-
Chrome 3.0.195.27 eða nýrri útgáfur.
Á tölvu sem keyrir á OS X 10.5 eða nýrri útgáfu geturðu notað:
-
Safari 3.1 eða nýrri útgáfur.
-
Firefox 3.0.1 eða nýrri útgáfur.
Á tölvu sem keyrir Linux geturðu notað:
-
Firefox 3.0.1 eða nýrri útgáfur.
Ef þú notar vafra sem styður ekki allar aðgerðirnar mun Outlook Web App opna létta útgáfu.
Létt útgáfa af Outlook Web App
Léttari útgáfa Outlook Web App er fínstillt fyrir aðgengi, til dæmis blindra eða sjónskertra notenda. Léttari útgáfan býður færri aðgerðir en staðlaða útgáfan og er hraðari í sumum aðgerðum. Léttari útgáfan gæti hentað ef tengingin þín er hæg eða þú notar tölvu með vafra með óvenju strangar öryggisstillingar. Hægt er að nota léttari útgáfuna með næstum hvaða vafra sem er og er með sömu aðgerðir í öllum vöfrum.
Frekari upplýsingar um hvernig á að nota léttu útgáfuna eru í: Aðgengi fyrir blinda eða sjónskerta notendur.
Hvað annað er gott að hafa í huga?
-
Ef þú þarft að nota S/MIME fyrir stafrænar undirskriftir eða skeytadulkóðun þarftu að nota Internet Explorer 7, Internet Explorer 8 eða Internet Explorer 9.
-
Athugaðu valkosti vafrans til þess að staðfesta eftirfarandi stillingar svo upplifunin af Outlook Web App verði sem best:
-
Gera lotukökur virkar. Lotukökum er eytt í lok vafralotu.
-
Gera JavaScript virkt.
-
Athugaðu stillingar sprettigluggavarnar. Stillingar sprettigluggavarnar í vafranum þínum eða í viðbótarsprettigluggavörnum gætu komið í veg fyrir að Outlook Web App starfi eins og við er að búast.
-
Gera lotukökur virkar. Lotukökum er eytt í lok vafralotu.
Hvar finn ég frekari upplýsingar?
